P.s er að spyrja fyrir vin.
Er þetta venmo ekki bara til utaf því hvað bankaöppin í bna eru mikið drasl? Þarft þetta ekkert hérna.
Það er hundrað sinnum auðveldara að nota svona app og stimpla bara inn símanúmer frekar en að gefa öllum bankaupplýsingar. Í Danmörku er líka hægt að nota þetta til að borga í mörgum búðum og jafnvel á netinu. Svo er þetta auðvitað fullkomið fyrir loppumarkaði og slíkt.
En auðvelt að láta eins og þetta sé bara eitthvað drasl þegar maður veit ekki hverju maður er að missa af. Það er ekta íslenskt.
Hvað áttu við, þetta er til á Íslandi... Heitir aur.
Frábært, ég vissi ekkert um það. Ég svaraði bara /u/Vondi sem lét eins og þessi öpp væru tilgangslaus.
Já það eru margir hérna að segja að það sé ekki þörf fyrir þessu útaf banka öppin okkar eru svo góð (og þau eru fín). En sem fyrverandi notandi á Mobile pay í dk, var ég svooo sáttur þegar Aur kom.